nú er komið dáldið langt síðan mamma settist niður til að blogga
smá um líf mitt og tilveru.
ég varð veikur í gær þannig að mamma fór ekki með mig í leikskólann
í dag.
erum bara búin að vera að letingjast í allan dag. ég fór inní
frysti og fann þar frostpinna... held að mamma sé að spá í að læsa
frystinum svo ég finni ekki svona lagað hehe nei nei (vonandi ekki
allavegana).
það eru að koma jól

jólasveinninn er byrjaður að gefa mér í
skóinn... ég fékk 2 mandarínur fyrst, varð mjög kátur með það...
hljóp upp til ömmu og afa alveg í skýjunum yfir að hafa fengið
appelsínu eins og ég orðaði það sjálfur hehe svo fékk ég kinderegg
í gær og smá hlaup í dag ... mjög sáttur bara... hef samt svo lítið
vit á þessu... skil ekki þegar mamma er að segja mér að vera þægur
fyrir jólasveininn haha algert rugl sko.
mamma gaf mér ný náttföt um daginn

svona jólasveina náttföt með
jólanátthúfu... henni fannst þetta svo agalega sætt að ég varð
eilla bara pirraður haha mamma er stundum svo vitlaus hehe
það var svona þemadagur í leikskólanum í dag og ég missti af honum

allir áttu að mæta í einhverju rauðu.. bara leiðinlegt að missa
af því...
núna er kl 2 og ég og mamma ennþá á náttfötunum... bara klikkað lið
sko...
söngvaborg er nr 1,2 og 3 þessa dagana... allir í familíunni eru að
verða geðveikir á mér... söngvaborg er í gangi alla daga og ef hún
er ekki í gangi þá er ég að tala um söngvaborg eða syngja lögin
haha....
uppáhaldsleikfang þessa dagana er kassagítar sem ég fékk gefins um
daginn.... alltaf að spila og syngja.
mamma fór í foreldraviðtal um daginn. allt mjög gott, hress og mjög
skemmtilegur strákur, alltaf syngjandi og leikur ekki með dót haha
bara syngja og spjalla og einhvað. pínu matvandur

kann að telja
uppá 14, er að læra litina... veit hvað blár er

ég er ekki
frekur (allavegana ekki a leikskólanum) haha
en jæja nú er þetta komið nóg.... see yah later aligater
kveðja jón gunnar